TÓKALAND
VELKOMIN Í TÓKALAND
Wednesday, May 24, 2006
Áfall

 

 

Svartfjallaland samþykkti nú á dögunum aðskilnað frá Serbíu....þetta er hræðilegar fréttir fyrir Íslendinga...og vægast sagt mikið áfall........Nú verður enn erfiðara að vinna júróvision....

 

Maggi


Posted at 04:21 pm by maggitoka
Comments (2)  

Monday, May 22, 2006
Pæling

 

 

Svartfjallaland var að samþyggja aðskilnað frá Serbíu...Þetta þýðir bara eitt..það verður enn erfiðara fyrir Ísland að vinna júróvisjon......

Maggi


Posted at 06:44 am by maggitoka
Comments (2)  

Wednesday, April 26, 2006
Komiði sæl og blessuð

Nei þið hér...lang síðan að ég hef látið heyra frá mér...klukkan 1:45 og ég sit og drekk kalt kaffi úr könnu og er að smíða eitt stykki BA ritgerð...þrátt fyrir að vera að ljúka háskólanámi þá get ég ekki lært að draga ekki hlutina fram á síðasta söludag...5 dagar í skil en þetta er allt að hafast...Í eyrunum er best of Queen..mætir snillingar og bloodhound gang gamli góði diskurinn fær að fljóta með..og svo hlustaði ég á nýja Jet black Joe diskinn á tónlist.is..gæða gripur þar á ferð...

12 maí er svo kynning á lokaritgerðinni en hún er opinn öllum. Eftir að henni er lokið verður skálað í kampavín og farið á skrallið...og verður þetta í fyrsta skipti í eitt og hálft ár að sköthjúin fara á djammið saman....

24 júní er svo formleg útskrift og afmæli mitt..ég er ekki búinn að ákveða hvort að það verði slegið upp partýi..en það væri gaman...spurning hverjir verða hér á suðvesturhorninu þá?....Nota bene partýið yrði í bítlabænum...gæti orðið athyglisvert að djamma þar..hef ekki gert það sjálfur áður...

 


Posted at 06:44 pm by maggitoka
Comments (8)  

Monday, March 27, 2006
Seint og síðar meir

Góðan og blessaðan...Langt síðan að eg hef látið heyra í mér..Allt að gerast hjá manni..kominn með vinnu eftir skóla..Búinn að ráða mig í forstöðumanna stöðu yfir sambýli í Grindavík...Þetta þýðir það að ég er að flytja til keflavíkur og í dag gerði ég tilboð í íbúð og bíð nú sveittur á efri vörinni þangað til 16 á morgun..en fyrir þann tíma á ég að fá svar....

Annars er lítið að gerast í þessu blessaða þjófélagi nema það að helvíti baunahausarnir í Danmörku eru svo öfundsjúkir út í viðskiptalífið hér á klakanum að þeir eru búnir að valda titringi í alþjóðlegu viðskiptalífi með neikvæðri umfjöllun um íslensku bankana...og hvað þýðir þetta jú vextirnir hækka hjá okkur...Helvítis fífl...Sniðgöngum danskar vörur....

Ég vil líka nota tækifærið og óska Bogga innilega til hamingju með kærustuna..A BÁT TÆM!!!!!!

 

maggi

 

 


Posted at 01:10 pm by maggitoka
Comments (3)  

Tuesday, February 28, 2006
ble

Hvað í andskotanum á það að þýða magnús að blogga ekkert lengur!!!

gúrkutíð í blogginu...þegar lítið er að gerast í samfélaginu þá þagnar Tókalandið..Helstu fréttir eru að Fuglaflensan greinist hér og þar og færist nær og nær..og hvað gerist ef hún stökkbreytist og ef, kannski. þegar, mögulega...Svo loksins þegar þetta verður að veruleika verður þetta varla frétt lengur..og öllum drullusama...............Annað hvort er ég að verða alvarlega geðveikur eða að talvan mín er skrýtin því hún kallar núna þegar ég skrifa þennan pistil í sífellu HELLO!! HELLO!!!... Ef ég hverf af yfirborði jarðar þá vitið þið hvað hefur gerst..Jebb MATRIX myndinar orðnar að veruleika.....en á ég að svara tölvunni???

En hér er ein nýleg mynd af stoltinu....

 


Posted at 03:45 pm by maggitoka
Comments (7)  

Thursday, February 16, 2006
ýmiss

Fyrir tilviljun í gærkveldi skipti ég yfir á sjónvarpsstöðina Sirkus...Mikið hefur verið í umræðunni þessi ömulegu þættir sem hafa verið stjórnað af misgáfulegu ungu fólki...í gærkveldi var þátturinn Kallanir sem er stjórnað af Gilzenegger og Partý hans...Fyrir fram hélt ég nú að þetta gæti nú ekki verið góður þáttur..en viti menn..Þeir hafa vit á því að tala sem minnst djálfir heldur láta þann aðila sem þeir eru að breyta í hnakka gaspra..ÉG hló mig gjörsamlega máttlausan í gær er þeir tóku gunnar "horrengluna" úr strákunum og breyttu honum í fm hnakka...Geir Ólafasson fór á kostum sem ráðgjafi og þátturinn er bráð smellinn...Allavega gefiði þessu séns....

Einhver Dagný Linda náði "Stórkostlegum" árangri í bruni á vetrarólympíuleikunum að sögn fjölmiðla...Eða 23 sæti...Glæsilegt, frábært, ótrúlegt, alveg magnað.....Ég er ót´rulega stoltur íslendingur í dag..hlakka til að geta sagt útlendingum þetta..Did you know that we finshed in 23 place in women,s downhill event on the winter olympics!! beat that sucker!!

Stórleikur um helgina Liverpool- Manchester United í bikarnum...UTD tekur þetta 1-2...Og ósakndi væri ef Gary Neville skoraði sigurmarkið...

OG að lokum orðsending til Bogga..ég er búinn að ná í klaka fyrir Viskýið...

 

Magnús....

 


Posted at 02:10 pm by maggitoka
Comments (4)  

Saturday, February 11, 2006
jibby

 

 

Húrra fyrir mannanafnanefnd...Tóki er orðið löglegt nafn..Sjáið nánar hér


Posted at 05:24 am by maggitoka
Comments (1)  

Friday, February 10, 2006
Nældur

Enn einn spurningalistinn sem er byrjaður að ganga um bloggheiminn...Hver er svona blóðþyrstur að koma þessu alltaf af stað..stöðugur þorsti um að hnýsast í líf annara...en hér kemur þetta

4 störf sem ég hef unnið:

Planta (leiðinlegasta djobb ever...)

fiskivinnslu..(Stórskemmtilegt...)

Ferðafélagar (ferðafélag fatlaðra)

Sorpa..(athyglisverð reynsla)

Fjórar bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur:

Sódóma

Torrente

Torrente2

Nýtt líf

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

Tókastaðir (bóndinn)

Egilsstaðir (Partýpleis)

Köben (þar sem viktor varð til;)

Reykjavík (Námsmaður)

4 sjónvarpsþættir sem ég elska að horfa á:

The Office (snilld snilld snilld)

Little Birtian

Lost

Nip Tuc

4 staðir sem ég hef verið í fríi á:

París (Pissulyktarborgin)

Danmörk

Færeyjar

Væntanlega Búlgaría

4 vefsíður sem ég skoða daglega:

Visir.is

mbl.is

Fotbolti.net

manutd.is

4x bestu matarréttinir:

Heimabökuð pizza

fajitas

jólamaturinn

Kjúklingabringur

4 bloggarar sem ég mæli með:

Boggi (maðurinn loks byrjaður að blogga)

Guggur (Ástfangið Nörd í svíþjóð...góð blanda)

Gústi (Upplifir djammfílinginn í gegnum hann)

Sjöbba (Synd að hún hafi hætt)

4 bloggarar sem ég ætla að næla:

Guggur

Boggi

Magni

Gústi

 

 

 

 

 

 


Posted at 05:20 am by maggitoka
Make a comment  

Wednesday, February 08, 2006
Góður dagur....

Já þetta er nú bara búinn að vera góður dagur...atvinnutilboðum ringdi inn..jú marr er nú víst að klára skólann..og eimmitt það þýðir eitt útskriftarferð....BÚLGARÍA...Jebb 25 maí-1 júní....Og svo stoppaði mig maður niðrí miðbæ og spurði mig hvort ég vissi um einhvern rónabar...sennilega landsbyggðarróni en það er allt önnur saga...

magnusOV


Posted at 12:44 pm by maggitoka
Make a comment  

Monday, February 06, 2006
Júró

Já Júrovíson dramað heldur áfram...Greinilegt að menn eru búnir að átta sig á því að þeir eigi ekki séns í kepnina ef Silvía Nótt heldur áfram...Vonum það besta....Væri tær snilld ef við myndum senda hana...en hér geti þið séð frammistöðuna síðastliðinn laugardag....

 


Posted at 09:40 am by maggitoka
Make a comment  

Next Page


+ + + + + + +

Profile

 
Maggi Tóka...
Er einhversstaðar svona á milli 20-30...
Krabbi fæddur á ári Hestsins....
MSN: TOKI449@HOTMAIL.COM


Tag Board

   
Calendar

<< October 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03
04 05 06 07 08 09 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Links





Heba mín
Dagný og Fjölskylda
Guggur
7bba
Íris
Finnur.tk
Elli "bloggari"
Gazzi Mayjonesa
Maggý
Myrkur
Magni
Berglind frænka
Gústi
Arnar Péturss
Haffi
Einar Hró
Hlynur
Elva Rakel
Sveinn Elmar
Elli Mý
Björgvin
Óli Björns
Lísa
Bylgja
Sigga frænka
Pungvar Skúla
Þorkell
Elvar Lomm
Mafían
Máni Jósepss

ásta kristín
Máni


Contact Me

rss feed
BLOGDRIVE
TEMPLATES