|
VELKOMIN Í TÓKALAND
Friday, February 03, 2006
Stiklur Vald auglýsinga er ógnvænlegt....Sonurinn kominn á áttunda mánuð og þekkir upphafsstef auglýsingana á öllum stöðvum og horfir frosinn á sjáonvarpið meðan þetta miður skemmtilega sjónvarpsefni birtist...Spurning hvort að það ætti ekki að gefa þetta út á DVD? fínt barnaefni fyrir ungabörn..... Ræktin var "hrikaleg" í dag.....Ekki nóg með það að maður hafi verið hálf slæptur eftir bjórkvöldið í gær en þá var pallatími....Já margir halda að þetta sé nú lítið mál og sé eingöngu fyrir einhverjar kellingar...úff..hélt að ég myndi líða út af...Þetta er rosalegt... Ég skil ekki þingmenn sem eru á móti reykingabanninu...þetta er þingmenn sem meira segja eru reyklausir sjálfir...Maður nennir varla að fara á pöbb að horfa á fótbolta vegna helvítis reykinga...Fullt af þjóðum hafa gengið þetta skref, meira segja Ítalía og þar hlutfallslega mjög margir...Ein rökin sem Sigurður Kári kom með á móti banninu að með þessu myndu reykingarnar færast aftur inn á heimilin og við myndum mökka ofaní börnin okkar...Þvílíkt fífl... Svo að lokum vil ég benda á að ég er með harðfisk til sölu....svo hafið samband eins fljótt og þið getið ég er að verða búinn að éta hann allann......... Maggi yfir og út....
Saturday, January 28, 2006
HVAÐA ÁR ER???? Jesús dúdda mía....ég horfði á undankeppni júrovision í ríkiskassanum.....Þvílík skelfing..Það mætti halda að við værum stödd árið 1991 í undankeppni Júrovison í þýskalandi....Ef þetta eru bestu lögin..hvernig voru þá hin 198 sem voru hafnað....OG HVER MEIKAR SÖNGVARANA....það er sami litur á andlitinu á þeim og þynnkukúki....
Maggi alvarlega að íhuga að hefja tónsmíðar..það virðist vera að hvað hálviti sem er samið lag!! Friday, January 27, 2006
PARTÝ.... Tengdafjölskyldan í mat..Danmörk-Ísland...úff..Idol.. geisp allt of margir keppendur...Dómnefndin nokkuð hnyttinn samt....Keflavíkshnakkinn Óli Geir "herra ísland" sviptur titlinum í kvöld, þetta er gaurinn sem stjórnar þættinum Splash Tv á Sirkus..held að ætti að svipta honum sjálfræði....EN TIL AÐ TOPPA KVÖLDIÐ KÍKIÐ Á ÞETTA!!!
Maggi " daglegur gestur á Grand hótel en það er allt önnur saga" Thursday, January 26, 2006
WIN! Ísland gerði sig lítið fyrir og vann fyrsta leikinn á EM..Viktor Nói var steinhissa yfir þeim hegðunartruflunum sem faðir hans sýndi í sófanum..ég verð að fara átta mig á því að mennirnir í sjónvarpinu heyra ekki hvað ég segi....Rakst á síðu sem bloggsíðu sem landsliðið er með...Óli Stefáns bloggaði í kvöld...og á hverju er þessi maður................................. "Stefánsson mættur. Dílaði við Birki. Frekar nauðungarsamningur heldur en einhver mutual, fifty fifty díll. Ég verð að hripa eitthvað á þessa síðu hans og í staðinn lánar hann mér ræmur ( sem ég var svo steiktur að klikka á). MAÐURINN ER STEYPA.... Wednesday, January 25, 2006
Handballl Já..Já..EM í hanbolta að byrja á morgun...bæði tilhlökkun og kvíði í gangi..Ég held að manni líði sjaldan jafn illa og þegar hanboltalandsliðið er að kúka í buxunar á stórmótum...En vonandi ná þeir topp 5....Held að handbolti sé mjög vanmetin íþrótt..hún er hröð..fullt af mörkum..fullt af brotum og oft á tíðum æsispennandi..Hvernig stendur á því að hún er ekki vinsælli en hún er....
en áfram ísland Saturday, January 21, 2006
Fótboltablogg Stórleikur í boltanum á morgunn..Darren Fletcher og félagar í Manchester United taka á moti Djimi Traore og hinum kauðunum í Liverpool...Spái því nú að þessi maður afgreiði púllarana.... Manchester United 3 Liverpool 1 Friday, January 20, 2006
Bóndadagur.. Bóndagur í dag og Bónus ætlar sér að græða á því..Heilsíðuauglýsing er í fréttablaðinu í dag..Til að mynda eru boðnar Claudio nærbuxur á bóndann, Konfekt og sokkapar með..Það á víst að slá í geng samkvæmt auglýsingunni..Saltkjöt, Harðfiskur, súr matur,hákarl, smokkar og sleipiefni...Já ég sagði smokkar og sleipiefni..undir fyrirsögninni "Við spyrjum EKKI að leikslokum"...Já kæra þjóð, Jóhannes í Bónus er að hvetja okkur til þess að stunda endaþarmsmök... Bónus "alltaf ódýrast!!"..... p.s. Hvernig halda femenistar haldi upp á bóndadaginn? Svar: það getur ekki verið að þær eigi mann...
Tuesday, January 17, 2006
Ræktin Nú er marr byrjaður í ræktinni á fullu aftur eftir að hafa bætt aðeins á sig í barneigninni..fínt að vera kominn á fullt aftur..Stefnt er á það í lok vorsins að fara upp á Hvannadalshnjúk um Hvítasunnuhelgina.....
það verður ekki leiðinlegt að vera þarna 4 júní....
Saturday, January 14, 2006
Munaði mjóu.... Fór í göngugreiningu í vikunni..Kom í ljós að annar fóturinn er 1,5 cm styttri en hin...Guð blessi þann lengri..Ég væri minni en Boggi ef þessi lengri væri ekki... Vil ekki hugsa þá hugsun til enda ef ég væri minni en Boggi...Þannig BÆ Friday, January 13, 2006
Dagblaðið vísir DV fór alveg með það...Maður getur varla horft,hlustað né lesið fjölmiðil án þess að sjá, heyra eða lesa eitthvað um þetta mál...Bubbi búinn að semja lag og allt krazý..Það sem er verst við þetta allt saman er að sannleikurinn mun aldrei koma fram í því máli sem DV setti fram á forsíðu sína síðastliðinn þirðjudag..Mér finnst hafa verið einum of mikið einblínt á "fórnarlambið" sem svipti sig lífi..Það voru fleiri fórnarlömb.. Ég hef verið ansi mikilli blogglægð undanfarin misseri..En nú er tími til að hrækja all hressilega í lófana og reyna losa um þá ritstíflu sem hefur verið á milli eyrnanna..
Magnús...er að vakna úr dvala...
|
Profile Maggi Tóka... Er einhversstaðar svona á milli 20-30... Krabbi fæddur á ári Hestsins.... MSN: TOKI449@HOTMAIL.COM Tag Board Calendar
Links Heba mín Dagný og Fjölskylda Guggur 7bba Íris Finnur.tk Elli "bloggari" Gazzi Mayjonesa Maggý Myrkur Magni Berglind frænka Gústi Arnar Péturss Haffi Einar Hró Hlynur Elva Rakel Sveinn Elmar Elli Mý Björgvin Óli Björns Lísa Bylgja Sigga frænka Pungvar Skúla Þorkell Elvar Lomm Mafían Máni Jósepss ásta kristín Máni Contact Me
| |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||